Flói - Þjónustu og upplýsingavefur - Fjör í Flóanum 2006

  VELKOMIN Í VÍÐSÝNIР                                                                                                                                               
         Þjónustu- og upplýsingavefur Flóahrepps                                               

Fjör í Flóanum 2006

Nú byrjar Fjörið enn á ný.  Fjörið í fyrra verður lengi í minnum haft.  Sagt var að jarðskjálftamælar hefðu sýnt töluverðar hræringar og víst er að afleiðingarnar urðu varanlegar.  Hreppamúrar hrundu og gamalreyndar hreppsnefndir stokkuðust upp.  Bandaríski herinn hrökklaðist úr landi vegna vopnaskaks Flóamanna og verðbólgudraugurinn losnaði úr viðjum.  Þrátt fyrir þetta eru hinir fjallhressu Flóamenn ekki af baki dottnir.  Hyggjast þeir efna til mannfagnaðar að nýju og bjóða til sín gestum.  Hermálasérfræðingar heimsins bíða milli vonar og ótta, þar sem helsti fræðimaður landsins á sviði bogafræði er væntanlegur í Flóann til að kynna sinn vopnabúnað.  Vígtólið hér við hliðina er hornbogi í þrenns konar stöðu:  Ógnvænlegt vopn.

Fjör í Flóanum 2006 verður stórkostleg skemmtun; fræðandi, heilsusamleg og menningarleg.  Nú má enginn missa af.  Með því að smella á hátíðisdagana hér fyrir neðan má sjá dagskrána í heild, en nánari upplýsingar um einstök atriði er hægt að fá á viðkomandi stað.  Auðvitað má enginn gleyma að kjósa, en ekki er síður nauðsynlegt að bregða sér í Flóann og hressa upp á sálartetrið eftir langvarandi neyslu kosningaáróðurs.

Föstudagur 26. maí:  M.a. gönguferð að helli hjá Haugi, skemmtun í Félagslundi, frambjóðendur, tónleikar Hunds í óskilum í Þingborg o.fl.

Laugardagur 27.maí:  M.a. handverkssýningar, listsýningar, kosningakaffi, frægasta bogskot Íslandssögunnar endurtekið, fyrirlestur, skoðunarferðir um magnaðar slóðir, draugaferð, leikir fyrir börn, tískusýning, dekurkvöld, vegleg veisla, kosningaúrslit o.fl.

Sunnudagur 28. maí:  Handverkssýning, smádýr til sýnis, myndbandssýning, listmunasýning, spennandi Kambránsferð, fróðlegir fyrirlestrar um Flóaáveituna og votlendisfugla, gönguferð að flóðgátt Flóaáveitu og með Hvítárbökkum o.fl.

Auk þess er spennandi ratleikur í gangi út um allar trissur og opið hús verður hjá ferðaþjónustuaðilum.  Hér má sjá reglur í ratleiknum.

ps: Munið að panta fyrir 25. maí á stórkostlegt kvöld í Þingborg laugard. 27. maí kl. 20:00.

Fjörið heldur áfram á mánudaginn, en þá verður opið málþing um listir og menningu, í menningarmiðstöðinni Þjórsárveri.  Þar verða flutt nokkur fróðleg framsöguerindi, en síðan starfa málstofur um fjölmörg mál sem varða listir og menningu.  Nánar á upphafssíðu.

þjónustu- og upplýsingavefur Austur-Flóa  | Sími: (+354) 862 2345 | Netfang: floi@floi.is Web Site Counter hafa heimsótt síðuna frá 16. maí ´05 

Veftré | Forsíða | Heim | Ferðamál | Svæðið | Gönguleiðir | Fyrirtæki og þjónusta | Fjör í Flóanum 2006 | Myndir | Dagatal | sameining | Stjórnsýsla | Tæknisafn Íslands | Tenglar | Hafa samband | EnglishFree Counter