Flói - Þjónustu og upplýsingavefur - Ferðamál

  VELKOMIN Í VÍÐSÝNIР                                                                                                                                               
         Þjónustu- og upplýsingavefur Flóahrepps                                               

Uppbygging ferðamála í Flóanum

Öflug félagsheimili.  Ferðaþjónusta á sér ekki langa sögu sem atvinnugrein í Flóahreppi, en á síðustu árum hefur henni vaxið fiskur um hrygg.  Félagsheimili eru þrjú í hreppnum; Þingborg, Þjórsárver og Félagslundur.   Félagsheimilin hafa fyrst og fremst verið miðstöðvar félagslífs, en hlutur leigustarfsemi hefur þó jafnan verið nokkur og farið vaxandi á síðustu árum.  Má kalla það fyrsta vísi að ferðaþjónustu, en auk þess hefur Gistiheimilið Bitra starfað um nokkurt árabil.


Samvinna í ferðamálum.  Upphaf samstarfs í ferðamálum má rekja til þess að árið 1999, meðan hreppar voru þrír á svæðinu, réði Félagsheimilið Þjórsárver umsjónarmann, Valdimar Össurarson, í fullt starf.  Meðal verkefna hans var að skjóta stoðum undir rekstur og tekjuöflun.  Um fáa kosti var að velja aðra en leigustarfsemi og ferðaþjónustu.  Kom þá í ljós að Flóa- Ölfussvæðið í heild var töluvert á eftir nágrannasvæðum í uppsveitum Árnessýslu hvað varðar samvinnu á þessum sviðum.  Stjórnendur Þjórsárvers boðuðu til fundar ferðaþjónustuaðila og sveitarstjórna í lágsveitum Árnessýslu (Ölfusi og Flóa) 24. maí árið 2000.  Var þar samþykkt að sveitarstjórnirnar 6 á svæðinu tilnefndu fulltrúa í nefnd sem hefði það hlutverk að undirbúa stofnun ferðamálanefndar og starf ferðamálafulltrúa fyrir Ölfus/Flóasvæðið.  Sá undirbúningur var langt kominn þegar stærsta sveitarfélaginu snerist hugur og hafnaði frekara samstarfi.  Var þessi tilraun þá fullreynd.
Umsjónarmaður Þjórsárvers fór þá fram á það við hreppsnefnd Villingaholtshrepps að hún skipaði ferðamálafulltrúa fyrir hreppinn.  Var það gert og hann sjálfur ráðinn.  Hóf hann þegar að leggja drög að samvinnu við nágrannahreppana tvo, Hraungerðis- og Gaulverjabæjarhrepp. 

Ferðamálanefnd Austur-Flóa.  Í kjölfar fundar með oddvitum hreppanna í ársbyrjun 2003 var skipuð nefnd þar sem hver hreppanna þriggja átti sinn fulltrúa, og valdi hún sér heitið Ferðamálanefnd Austur-Flóa.  Valdimar var formaður nefndarinnar og var á sama ári ráðinn sem ferðamálafulltrúi Austur-Flóa.  Ferðamálanefndin fékk sérstaka kennitölu og sjálfstæðan fjárhag.  Skipan nefndarinnar var þannig:  Alma Oddsdóttir, Fljótshólum fyrir Gaulverjabæjarhrepp,  Elísabet Jóhannsdóttir, Bitru fyrir Hraungerðishrepp, og Valdimar Össurarson, Þjórsárveri fyrir Villingaholtshrepp.  Þrátt fyrir að fulltrúar væru skipaðir af sveitarfélögunum var nefnin í raun áhugamannafélag.  Hafði hún mikið sjálfstæði og markaði eigin stefnu í sínum málaflokki. Nefndinni var frá upphafi ætlað það hlutverk að efla ferðamennsku og ferðaþjónustu á svæðinu og vera málsvari ferðaþjónustuaðila, ferðamanna og sveitastjórna í þeim málum sem að ferðaþjónustu snúa. Hafin var vinna við mörg verkefni í þessum tilgangi, svo sem; mótun ferðamálastefnu, kortagerð; uppsetningu heimasíðunnar floi.is; merkingu gönguleiða; gerð fræðsluskilta og söfnun heimilda um sagnir og markverða staði.  Einnig hóf nefndin störf við kynningu svæðisins útávið og samstarf við nágrannasvæði.  Er þegar farinn að sjást árangur af ýmsum þessara þátta.  Sumarið 2004 var hafin vinna við mótun ferðamálastefnu.  Samið var við Sævar Kristinsson hjá fyrirtækinu Netspor um að vera nefndinni til ráðgjafar í þeirri vinnu.  Haldnir voru fundir með ferðaþjónustuaðilum og íbúum svæðisins og fram kom mikill áhugi og margar tillögur.  Ferðamálafulltrúi vann náið með Sævari að lokagerð stefnunnar, og var hún fullgerð vorið 2005.  Til að kynna ferðamálastefnuna, nýútkomið sérkort af svæðinu og heimasíðuna var ákveðið að efna til mikillar hátíðar í samvinnu við íbúa og félög á svæðinu.  Hlaut hún nafnið "Fjör í Flóanum 2005", og varð margþætt og vegleg í sniðum.  Ákveðið var að kynna svæðið sameiginlega undir slagorðinu "Velkomin í víðsýnið".  Meginmarkmið ferðamálastefnunnar er að stórefla ferðaþjónustu á svæðinu með markvissu samstarfi fyrirtækja og einstaklinga  og leggja áherslu á að kynna kröftuga menningu sem gerir ferðamönnum kleift að vera þátttakendur í uppákomum með heimamönnum.  Lögð er áhersla á að hafa fjölbreytta afþreyingu á boðstólnum  allan ársins hring, en til þess að svo megi verða verður öll grunngerð svæðisins að taka  mið af ferðaþjónustu í framtíðinni.

Atvinnu- og ferðamálanefnd Flóahrepps.  Í kjölfar sameiningar hreppanna þrigga vorið 2006 skipaði nýkjörin hreppsnefnd Flóahrepps nýja nefnd sem hlaut nafnið Atvinnu- og ferðamálanefnd Flóahrepps.  Hún tók tímabundið við verkefnum Ferðamálanefndar Austur-Flóa en hafði víðtækara hlutverk á sviði atvinnuuppbyggingar og byggðaþróunar á svæðinu.    Er þetta 5 manna nefnd sem er þannig skipuð: Stefán Geirsson, formaður, Steinunn Elísabet Jóhannsdóttir, Bjarni Einarsson, Jón Elís Gunnlaugsson og Kristján Gestsson.  Valdimar Össurarson starfaði árfam sem ferðamálafulltrú að verkefnum á sviði ferðamála, og vann um tíma á vegum þessarar nefndar.  Brátt kom í ljós að sveitarstjórn vildi fara aðrar leiðir í þessum málum en nefndin; m.a. afnema sjálfstæði nefndarinnar og kennitölu, þannig að hún yrði einungis ráðgefandi.  Ekki náðist samkomulag um að þessi yrði framtíðarskipan ferðamála.  Valdimar og fleiri töldu vænlegra til árangurs að ferðamálum yrði stjórnað í meira mæli af áhugafólki og hagsmunaaðilum líkt og verið hafði, en í góðri samvinnu við sveitarstjórn. 

 Ferðamálafélag Flóamanna.  Í janúar 2007 var unnið að undirbúningi að stofnun áhugamannafélags.  Var Ferðamálafélag Flóamanna stofnað 31. janúar 2007 af öflugum hópi áhugamanna.  Fyrri stofnfundur var í Þjórsárveri en hinn síðari á Kríunni.  Gerðar voru ítarlegar samþykktir, og kosnir stjórnendur.  Aðalstjórn skipa í byrjun þau sömu og voru í Ferðamálanefnd A-Flóa, enda má líta svo á að FF taki við starfi og verkefnum þeirrar nefndar.  Formaður og ferðamálafulltrúi er Valdimar Össurarson, gjaldkeri er Alma Oddsdóttir og ritari Elísabet Jóhannsdóttir.  Varamenn eru Ólafur Lárusson, Heimir Ólafsson og Hörður Harðarson.  Endurskoðendur eru Kristján Gestsson og Brynjólfur Jóhannsson.  Leitað verður eftir samstarfssamningi við ýmsa aðila, s.s. sveitarstjórn Flóahrepps.  Verkefni þessa nýja félags eru fjölmörg, eins og nánar má sjá í samþykktunum.  Meðal annars liggur fyrir að endurskoða ferðamálastefnu, endurprenta svæðiskort, endurhanna vefsíðuna floi.is, vinna að lagfæringum og fjölgun gönguleiða, setja upp fræðsluskilti, kynna svæðið o.fl.  Stærsta verkefnið verður þó það sama og verið hefur; Tæknisafn Íslands.  Einnig er verndun náttúru- og menningarverðmæta veigamikill þáttur í stefnu félagsins.  Þar ber Urriðafoss hæst um þessar mundir.  Félagið mun ekki samþykkja að honum sé fórnað án fullra bóta til handa ferðaþjónustu.  Urriðafoss er vatnsmesti foss landsins og einn vinsælasti áningarstaður ferðafólks í Flóahreppi.

Velkomin í víðsýnið

Valdimar Össurarson
ferðamálafulltrúi Flóamanna

 


 

þjónustu- og upplýsingavefur Austur-Flóa  | Sími: (+354) 862 2345 | Netfang: floi@floi.is Web Site Counter hafa heimsótt síðuna frá 16. maí ´05 

Veftré | Forsíða | Heim | Ferðamál | Svæðið | Gönguleiðir | Fyrirtæki og þjónusta | Fjör í Flóanum 2006 | Myndir | Dagatal | sameining | Stjórnsýsla | Tæknisafn Íslands | Tenglar | Hafa samband | EnglishFree Counter