Ferðamálanefndin hefur beitt sér fyrir bættu aðgengi almennings að merkustu og fallegustu stöðum svæðisins. Þetta starf er unnið í nánu samsarfi við landeigendur á hverjum stað, og með aðstoð dugmikils fólks, t.d. ungmennafélaganna.
Svæðið býr yfir miklum fjölda staða sem gaman og fróðlegt er að skoða. Verkið framundan er því mikið, og verður unnið í áföngum. Ferðamenn eru minntir á að fara gætilega um landið. Einkum þarf að gæta þess að skemma ekki viðkvæman gróður, skilja ekki eftir rusl og valda ekki óþarfa ónæði. Heimamenn virða sjálfsagðan rétt ferðamanna til að fara um landið og þurfa ferðamenn þá einnig að sýna heimamönnum tillitssemi. Víðast er landið hættulaust yfirferðar, sé útbúnaður réttur. Þó þarf alltaf að gæta sín, t.d. nálægt árbökkum og í úfnu hrauni. Ekki má veiða í ám nema með leyfi landeigenda. Meðferð skotvopna er bönnuð, og hundar þurfa að vera í góðri gæslu, séu þeir með í för.
Velkomin í einstaka náttúru, sérstæðar söguslóðir og stórkostlegt útsýni: Velkomin í víðsýnið !