Hér verður Flóahreppi lýst lítillega. Annarsvegar er hægt að skoða svæðið útfrá efnisþáttum:
Byggðin
Sagan
Náttúra
Jarðsaga
Vættir
Hinsvegar er leiðarlýsing um svæðið, og fylgir hún hinni fornu hreppaskiptingu, fyrir sameiningu:
Hraungerðishreppur náði um n
orðurhluta Flóans.
Í grófum dráttum lágu suðurmörkin frá Selfossi eftir Gaulverjabæjarvegi suður fyrir Bár.
Þaðan í NA eftir
Hróarsholtslæk og Bitrulæk, og fylgdu honum að Suðurlandsvegi.
Villingaholtshreppur afmarkaðist að austanverðu af Þjórsá, en lá að Hraungerðishreppi að norðvestanverðu og Gaulverjabæjarhreppi að suðvestanverðu. Náði hann frá Merkurhrauni í norðri að Traustholtshólma í Þjórsá í suðri. Landslagið mótast einkum af lágum ásum og holtum, en í suður og norðurhluta sveitarinnar er flatt land ofan á hinu mikla Þjórsárhrauni. Víðsýni er mikið og fallegt.
Gaulverjabæjarhreppur náði í stórum dráttum yfir hið forna landnám Lofts hins gamla Ormssonar frá Gaulum í Noregi, en hann nam land fyrir utan Þjórsá að Rauðá og upp til Skúfslækjar. Einnig Breiðumýri hina eystri og upp til Súluholts.