Flói - Þjónustu og upplýsingavefur - sameining

  VELKOMIN Í VÍÐSÝNIР                                                                                                                                               
         Þjónustu- og upplýsingavefur Flóahrepps                                               

Sameining Sveitarfélaga í Austanverðum Flóa:

Auglýsingar um kjörfundi og framlagningu kjörskrár neðar á síðunni.

Kynningarbæklingur
Fjárhagsupplýsingar sveitarfélaganna

 

Auglýsing um framlagningu kjörskrár

Frá samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga í austanverðum Flóa:

 

Kjörskrár vegna kosninga um sameiningu Gaulverjabæjarhrepps, Hraungerðishrepps og Villingaholtshrepps sem fram fer hinn 11. febrúar 2006, munu liggja frammi almenningi til sýnis á skrifstofum sveitarfélaganna á opnunartíma skrifstofu, eða eftir nánara samkomulagi, frá og með laugardeginum 21. janúar til og með föstudagsins 10. febrúar.

Óskum um leiðréttingar á kjörskrá skal komið á framfæri við oddvita viðkomandi sveitarfélags eins fljótt og unnt er. Tekið skal fram að óheimilt er að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hafði ekki borist þjóðskrá fyrir 21. janúar 2006.

 

Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga í austanverðum Flóa, 20. janúar 2006.

 

Allir þeir sem eiga kosningarrétt við sveitarstjórnarkosningar, sbr. 2. gr. laga nr. 5/1998, með síðari breytingum, eiga einnig rétt á að taka þátt í atkvæðagreiðslu um sameiningu sveitarfélaga.

 

Auglýsing um kjörfundi vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaga í austanverðum Flóa

 

Kjörfundir vegna kosninga um sameiningu Gaulverjabæjarhrepps, Hraungerðishrepps og Villingaholtshrepps verða haldnir laugardaginn 11. febrúar 2006. Kjörfundir verða í hreppunum þremur sem hér segir:

 

Gaulverjabæjarhreppur: Félagsheimilinu Félagslundi - frá kl. 12.00 til 21.00

 

Hraungerðishreppur: Félagsheimilinu Þingborg - frá kl. 12.00 til 21.00

 

Villingaholtshreppur: Félagsheimilinu Þjórsárveri  - frá kl. 12.00 til 21.00

 

Allir þeir sem eiga kosningarrétt við sveitarstjórnarkosningar, sbr. 2. gr. laga nr. 5/1998, með síðari breytingum, eiga einnig rétt á að taka þátt í atkvæðagreiðslu um sameiningu sveitarfélaga.

 

Sérstök athygli er vakin á því að kjósendum er skylt að gera kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd.

 

Kjörstjórnir Gaulverjabæjarhrepps, Hraungerðishrepps og Villingaholtshrepps.

 

þjónustu- og upplýsingavefur Austur-Flóa  | Sími: (+354) 862 2345 | Netfang: floi@floi.is Web Site Counter hafa heimsótt síðuna frá 16. maí ´05 

Veftré | Forsíða | Heim | Ferðamál | Svæðið | Gönguleiðir | Fyrirtæki og þjónusta | Fjör í Flóanum 2006 | Myndir | Dagatal | sameining | Stjórnsýsla | Tæknisafn Íslands | Tenglar | Hafa samband | EnglishFree Counter